Ein af átrúnaðargoðum Timburmanna úr æsku, Alicia Silverstone, sem í dag er auðvitað orðin fjörgömul, komst í fréttirnar nú á dögunum þegar hún eignaðist nýjan kærasta. Ekki eru allir á eitt sáttir um val hennar á væntanlegu mannsefni og sumir ganga svo langt að segja að nýji kærastinn hennar sé algjör asni!
Tíðindamaður Timburfrétta ætlaði að taka tímamóta viðtal við ungfrú Silverstone, en hafði því miður ekki næga inneign á símanum til að hringja til útlanda, þannig að þessi frétt verður bara ekki lengri.
