Þar sem það er nákvæmlega ekkert að frétta þá tóku fréttasnápar Timbur-frétta sig til og föndruðu nýtt logo fyrir hinn virta fréttavef Timbur-fréttir. Segja má að það hafi verið tími til kominn að skipta um logo á þessum stórkostlega vef enda meira en þrjár vikur síðan það var gert síðast.
Ritstóri Timbur-frétta var að vonum hæstánægður með nýja logiðið þegar hann var inntur eftir viðbrögðum við hinu nýja útliti. “Jú þetta er ekkert minna en frábært hjá strákunum. Þeim hefur tekist með þessu nýja logoi að fanga stemmingu miðilsins og ekki síður að virkja með í hönnuninni helstu áhugamál Timburmanna og það sem hjarta þeirra stendur næst. Auk þess unnu þeir þetta allt í sínum eigin frítíma þannig að þetta kostaði ekki rassgat.”
Það skalt tekið fram að nýja logoið er hundrað prósent rafknúið, endurvinnanlegt og kolefnisjafnað þannig að ofstækisfullir öfga-umhverfissinnar geta bara étið sokk!
