Eins og komið hefur fram áður hér á fréttaveitunni þá hefur formaður Timburmanna verið sviptur sjálfræði, og er það ákveðinn öfgahópur innan raða klúbbsins sem stóð að þeim verknaði.
Formaður Timburmanna var spurður nánar um málið og hvaða áhrif þessi sjálfræðissvipting hefði á hann og hans líf.
“Ég finn engan mun” – sagði formaðurinn í þvinguðu viðtali við Timbur-fréttir. “Ég er nú giftur maður þannig að það er töluvert langt síðan ég missti allt sjálfræði hvort sem er, þannig að ég er bara ligeglad með þetta allt saman!”
