Eitt frægasta hótel í eigu Timburmenn Group, Hótel Hraun, mun fá ærlega andlitslyftingu á næstunni.
Palli Vinkill, hótelstjóri, segir nauðsynlegt að ráðast í þetta verkefni þar sem hótelið teljist ekki lengur uppfylla nútíma þarfir hótelgesta, enda komnir yfir þrír áratugir síðan nokkru var breytt þar.
“Já, það verður t.d. bætt við læknastofum og “hittings”herbergjum sem alltaf hafa notið vinsælda, en sökum aðsóknar hefur sú starfsemi farið fram í gámum upp á síðkastið. Ekki sérlega heppilegt”, segir Palli Vinkill.
Umdeildasta breytingin er þó sú að koníaksstofan á efstu hæð, oftast kölluð “Turninn”, mun víkja. “Það verður líklega svolítill söknuður í gangi hjá mörgum” sagði Palli. “En svona er þetta bara. Hún hefur verið lítið notuð síðustu ár”.
Það þykir þó skjóta skökku við að ráðast í endurbætur sem þessar þegar sagan segir að hótelið að Hrauni hafi nánast verið fullbókað í mörg ár. Sumir gestir svo ánægðir með dvölina að þeir hafi strax farið að leggja drög að næstu dvöl eftir brottför. Fastakúnnar séu því þónokkrir.
