
Athygli vekur að á nú á tímum þegar ungir fótboltamenn eru í miklum vanda sökum kvensemi, fjölþreifni og annari óáran þá hafa eldri fótboltamenn stigið fram og látið ljós sitt skína. Þannig er nú fréttnæmt að kristján Rónaldóni er genginn til liðs við Mansteftirunited og að Slattan Ibra…eitthvað er að brillera með einhverju liði á Ítalíu. Rónaldóni sem kominn er hátt á áttræðisaldur sýndi og sannaði að hann hefur engu gleymt og ekkert lært er hann skoraði tvö mörk alveg óvart með liði sínu um helgina. Og ekki var Slattann Ibra…eitthvað verri, en hann á níræðisaldri álpaðist til að vera fyrir sendingu sem rataði svo beint í mark. Hvorugur þeirra vildi koma í viðtal eftir leikina þar sem þeir geta ómögulega munað hvað gerðist !

