9 þúsund manns hafa nú orðið þunnir eftir að átakið “Hefjum drykkju” hófst hjá Timburmönnum. Formaður klúbbsins segir átakið hafa gengið vonum framar en um 38% þeirra sem tekið hafa þátt hafa aldrei áður fengið að upplifa timburmenn. Hann segir að neyslulítrar ársins stefni hratt upp á við miðað við undanfarin ár.
Átakið Hefjum drykkju var kynnt í sumar en þá voru neyslulítrar komnir í “hættulega lága tölu” samkvæmt heimildum Timburfrétta.
Klúbburinn gerði ráð fyrir að veita um 55-58 þúsund lítrum af góðum veigum í átakið en markmiðið var að búa til 2000 nýja “reglulega drekkandi einstaklinga”.
“Ég er geysilega ánægður með árangurinn” sagði formaðurinn. “Ekki slæmt að geta sýnt þennan árangur við næstu formannskosningar”.
