Mikið fagnaðarefni er nú í herbúðum Timburmanna, en fyrir skemmstu var það gefið út að hin rómaða íþróttagrein koníakshlaup yrði loks gjaldgeng á næstu Ólympíuleikum. Timburmenn hafa sem kunnugt er barist ötullega fyrir framgangi þessarar göfugu íþróttar sem fundin var upp á aðalfundi Timburmanna fyrir rosa mörgum árum. Formaður Timburmanna réð sér ekki fyrir kæti þegar hann fékk fréttirnar og jafnvel er talið að það hafi tekið sig upp gamalt bros á honum, en Timbur-fréttir geta vissulega ekki staðfest þá sögu, enda harla ótrúleg.
Einn er þó hængur á, að sögn formanns, og er það að enginn kann í raun reglur koníakshlaupsins, enda voru menn jú langt frá því að vera allsgáðir þegar fyrsta og eina keppnin fór fram. Þannig man til dæmis enginn hverjir voru í liðnum, hversu mörg lið voru, hverjar séu reglurnar, né hvernig koníakshlaup fari yfirleitt fram. “Jú vissulega setur þetta minnisleysi pínulítið strik í reikninginn” sagði formaður Timburmanna, “en við höfum tæp fjögur ár, fram að næstu ólympíuleikum til að rifja þetta upp svo að það er ekkert stress í gangi!”

