Sigurður Arrrggrímsson hefur lýst því yfir að hann hafi selt bæði hlutabréfin sín í Bláa lóninu um daginn. Siggi segir að blátt sé bara alls ekki uppáhaldliturinn hans og að hann sé bara ógeðslega fúll yfir því að það sé ekki hægt að hafa þetta asnalega lón grænt, enda sé það fallegasti liturinn í öllum heiminum. Það er lífeyrissjóður Timburmanna sem keypti bæði hlutabréf Sigga á nafnvirði, eða sjötíu og átta krónur á hvort bréf. Formaður lífeyrisdeildar Timburmanna er að vonum ofsaglaður með kaupin og segir að nú sé blómaskeið lífeyrisdeildar Timburmanna loks hafið, enda veiti ekki af því Timburmenn eldist jú eins og aðrir. Timburmenn reikna með að fá að minnsta kosti einn mann í stjórn Bláa lónsins enda séu þeir orðnir meiriháttar hluthafar eftir kaupin.

