Össur EkkimjögsvoSkarphéðinsson utanviðsigráðherra staðhæfði á fundi hjá
Lionsklúbbnum Kidda í gær að tunglið væri sannarlega gert úr grænum osti. Þessar upplýsingar kvaðst ráðherrann hafa beint frá vini sínum og félaga Gaddaffí, en þeir snæddu einmitt apaheila saman félagarnir um daginn, þegar þeir áttu báðir stund milli stríða. “jú þetta er hárrrétt” – Sagði Össur, “Hann sagði orðrétt: Habballaa mana hamalikklich bundu beddimi, en allir vita náttúrulega að það þýðir einmitt að tunglið sé í raun gert úr grænum osti.”
