Ákveðið hefur verið að Herjólfur sigli nú einungis réttsælis hring um Vestmannaeyjar, en
hætti þessu brölti að reyna að sigla á Landeyjarhöfn eða Þorlákshöfn. Elli-ði bæjarfógeti í Vestmannaeyjum segir að þetta sé miklu betra svona, enda alveg vonlaust að eiga við þetta pakk þarna uppi á landi ! …Elli-ði bætti svo við að þeir hefðu nýverið frétt að Árni Johnsen hefði verið búinn að bóka far út í eyjar, og það sé eitthvað sem menn séu einfaldlega ekki tilbúnir í að svo stöddu !
