
Sænski kjötbolluframleiðandinn Ikea hefur ákveðið að innkalla allar kjötbollur sem selst hafa á Íslandi síðastliðin 8 ár. Þetta er gert til að stemma stigu við offitu þjóðarinnar, en sem kunnugt er eru íslendingar feitastir allra norðurlandaþjóða og er ljóst að stór ástæða þess er óhófleg kjötbollusala síðustu ára. Síðastliðin átta ár hafa selst tæplega fjórar milljón kjötbollur á íslandi sem samtals vega um 12 tonn og er því ljóst að íslendingar væru ca 12 tonnum léttari ef þeir hefðu ekki borðað allar þessar kjötbollur í gegnum árin. Ikea hefur því ákveðið að axla ábyrgð á þessu ástandi og innkalla hér með allar seldar kjötbollur síðustu átta ára. Þannig að ef þú hefur borðað kjötbollur í Ikea frá og með 1. febrúar 2009 ertu vinsamlega beðinn að skila þeim í verslun Ikea í Garðabæ hið allra fyrsta. Allir sem skila inn kjötbollum fá í staðinn að leika sér frítt í boltalandi í átta mínútur.
