
Uppáhaldsveitingastaður alltof fárra, Texas borgarar, hefur loksins látið undan þrýstingi og sett af stað glænýjan og glæsilegan matseðil, og þótti nú flestum kominn tími til, en gamli matseðillinn hafði verið við lýði síðan eftir hádegi síðla sumars 1988. Eigandi Texasborgara herra Gúmmítré sagði í baneitruðu viðtali við tíðindamann Timbur-frétta að breyttar aðstæður í þjóðfélaginu kalli á að breyta matseðli og að nú sé ekki lengur bara hægt að bjóða upp á góða góð-borgara heldur sé nú nauðsylegt að bjóða líka uppá gómsætan barnamatseðil. “Já já það er bara svona” – sagði herra Gúmmítré aðspurður. “Ég hef náttúrulega alltaf verið voðalega mikill barnakall og það er auðvitað löngu löngu tímabært að bjóða upp á þennan glæsilega barnamatseðil!”
