Heppnin leikur svo sannarlega við bandaríkjamenn í dag þegar þeir fá loksins góðan og frambærilegan forseta til starfa eftir átta ára valdatíð Obamba sem
svo sannarlega er svartur sauður í úlfagæru, svo ekki sé meira sagt. Dónland Trumpur verður settur í þetta valdamesta embætti heims, fyrir utan öll hin sem eru mun valdameiri, s.s. seðlabankastjóri o.s.frv). Við innsetningarathöfnina verður mikið um eina dýrð, en því miður fékkst einungis einn skemmtikraftur til að skemmta á skemmtuninni. Það er engin önnur en hin heimsfræga Indverska prinsessa Leoncie sem mun skemma fyrir Trumpinn og önnur fórnarlömb. Hátíðinni lýkur svo vonandi sem fyrst þannig að enginn beri varanlegan skaða af.
