Í ljós hefur komið að örlítil mistök virðast hafa átt sér stað þegar hið nýja og
stórglæsilega mannvirki, Landeyjarhöfn, var hannað og byggt. En sem kunnugt er þá hefur gengið frekar illa að sigla inn og út úr höfninni, allt frá fyrsta degi. Timbur-fréttir tóku yfirhönnuð Landeyjarhafnar, Bjálfa Bjólfsson, tali fyrir skemmstu: “Jú það er vissulega rétt, svona eftir á að hyggja að við hefðum hugsanlega getað staðið betur að hönnun og staðsetningu hafnarinnar”, sagði Bjálfi í kjánahrolls viðtali við Timbur-fréttir. En hvar liggur þá helsta vandamál hafnarinnar ? – “Jú sko, eins og áður sagði, eftir á að hyggja þá var kannski ekki besta hugmynd í heimi að byggja höfnina svona hátt uppi á fjalli !”
