Gengið hefur verið frá ráðningu nýs borgarritara hjá Reykjavíkurborg, en staðan var
auglýst til umsóknar í brandarablaði Andrésar Andar fyrir skemmstu. Alls bárust fjórar umsóknir, hver annari betri, að sögn borgarstjórans glaðbeitta, Jóns Gnarrrrsss. “Já þetta voru allt frábærar umsóknir og skemmtilegar, t.d. umsóknin frá Pappírs-Pésa og ekki var hún síðri umsóknin frá Lilla í Brúðubílnum, en best var náttúrulega umsóknin frá Bóbó trúð, en hún var svo drepfyndin að það lá við að að hann þarna leiðinlegi krullhærði í borgarstjórninni færi að hlæja, og Bóbó var umsvifalaust ráðinn með 12 atkvæði af 9 mögulegum !”
