Borist hefur út sá orðrómur að sérlegur verndarengill og dillibossi Timburmanna hafi hugsað sér að heiðra samkomu félagsins síðar í þessum mánuði. Hér er að sjálfsögðu verið að ræða um hina stórkostlegu og hæfileikaríku myndarkonu og hugsuð, Kim
Karrassian. Húsvörður Timburmanna, ásamt viðhaldsdeild klúbbsins er nú í óðaönn að vinna að stækkun á heitum potti félagsins, því ljóst er að hann er ekki nógu stór fyrir slíkan ofurbossa. Ljóst er að Timburmenn allra landa munu nú kætast sem aldrei fyrr, enda eru þeir fróðleiksfúsir og upplýsingaþyrstir og geta verla beðið eftir að hitta goðið og spyrja hana spjörunum úr !
