Formaður Timburmanna hefur tekið að sér umboð á Íslandi fyrir HotMale sundfatnaðinn vandaða og sínvinsæla frá Kazakpekuzistan. Um er að ræða mjög vandaðar og skjólgóðar flíkur, og ekki úr vegi að tryggja sér par eða tvö núna rétt fyrir orlofsferð Timburmanna sem stendur nú fyrir dyrum. Skýlurnar koma í tveimur litum og velja
menn litinn eingöngu og algjörlega eftir sínu eigin karlmennskulega öryggi. Efnið sem notað er í þessar skýlur heitir Nylmetan og er algjörlega nýtt og gjörekta gerviefni á markaði sem svo sannarlega hefur komið vel út og aukaverkanir eins og kláði, útbrot, aflimun, og önnur smáræði eru algjörlega minniháttar. Tekið er við pöntunum milli kl. 13:30 og hálftvö alla virka daga meðan birgðir endast.
