Friðbert Friðjónsson friðardómari, féhirðir og fánaberi fer fljótlega flúgandi til Finnlands að fiska upp ferða og furðusögur um fjöll, firnindi og fáfarna flóa. Friðbert fer förina með fríðu föruneyti en Friðjóna Fanndal og Fanney Fossan ferðast með Friðberti í ferðinni. Ferðin er farin til að fræðast um Finna og framandi furðusiði. Finnar eru jú furðulegir fýrar og fátt er furðulegra en furðulegur Finni. Friðbert finnur á sér að í ferðinni verði fríkað og fáránlegt og já frekar bara fyndið og fabulous !
