Litlu mátti muna að illa færi er bifreið með liðlega sjö þúsund kjúklinga fór út af í dag. Valt bifreiðin á hliðina og sjö þúsund kjúklingar með. Björgunarsveitir voru þegar kallaðar út og tókst að bjarga sexþúsundníuhundruðnítíuogsjö kjúklingum í einni viðamestu björgunaraðgerð sem sögur fara af, síðan Óli Ragg bjargaði þjóðinni frá Icesave samningunum sællar minningar.
Við nánari eftirgrennslan heilsaðist öllum sexþúsundníuhundruðnítíuogsjö kjúklingunum vel við komuna í sláturhús KFC núna á sjötta tímanum þegar tíðindamaður Timbur-frétta fór að kanna málið og panta sér einn legg eða tvo.
