Völvan gerir ráð fyrir eldgosi á landinu, eða kannski ekki. Einnig gerir hún ráð fyrir að það verði sviptingar í pólitíkinni, en þó er það ekki víst. Svo má einnig gera ráð fyrir að Ásdís Rán þyngist, eða kannski léttist. Ljóst er að Jón Ásgeir verður talsvert í fréttum, nema að hann sleppi því, og einnig má gera ráð fyrir að jarðskjálftar verði frekar tíðir eða ekki. Geir Ólafsson verður fyrirferðamikill á árinu en þó er það ekki víst og sama má segja um Pál Óskar, Póstinn Pál, Pál Postula og Pálu Púrru. Latibær verður mikið í sviðsljósinu, nema að það klikki og gert er ráð fyrir að Ásgeir Kolbeins skipti um lit á árinu, en það er þó ekki alveg víst. Jóhanna sigurðardóttir mun skipta um háralit og kyn, nema hún sleppi því og Steingrímur Joð fer að safna hári (glætan) !
