Þar sem í ljós hefur komið að ráðherrarnir Árni Páll og Jón Bjarnason eru ónýtir var ákveðið að skipta þeim út. Samkvæmt neytendalögum þá er ætlast til þess að gölluðum eintökum, og ónýtum, sé skipt út snarlega fyrir nýjar. Það hefur nú verið gert og hefur Neytendastofa þar af leiðandi látið málið niður falla.
Gert er ráð fyrir að aðrir ráðherra fari brátt á útsölu, eða jafnvel á rýmingarsölu, þó líklegra megi teljast að þeir verði seldir sem gölluð eintök að lokum.
