Forseti Ísland, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu:
“Forseta Íslands áskotnaðist sá heiður að hitta sjálfan stórleikarann Leonardo Dicaprio í Egilshöll í gær. Það fór vel á með forsetanum og stórleikaranum og auðvitað er það mikill heiður fyrir forseta lítils lýðveldis eins og Íslands að hitta stórmenni sem þettta, og að sjálfsögðu er það heiður fyrir Hollywood leikara að hitta og fá áheyrn hjá þjóðhöfðingja með meiru.”
Timbur-fréttir inntu Ólaf frétta af þessum hittingi og sagði Ólafur að þessi fundur hafi nú bara komið óvænt uppá, hann hafi nú einungis ætlað að skreppa í bíó, þar sem Dorrit hefði verið upptekin við að telja skartgripina sína. – “Það kom mér því skemmtilega á óvart þegar ég sá Dicaprio sjálfan þarna á hvíta tjaldinu, svo ég tók hann nú bara tali. Það er greinilegt að þetta er stórleikari því hann var gríðarlega stór þarna á tjaldinu, líklega á sjötta meter á hæð. En þetta var frábær fundur hjá okkur,þrátt fyrir að aðrir í bíóinu væru alltaf að sussa á mig ! …Það þykir mér nú dónaskapur að sussa á sjálfan þjóðhöfðingjann þegar hann ræðir málin við stórleikara !” – Sagði Ólafur að lokum
