Óhapp varð í Breiðafjarðarferjunni Baldri í gærkvöldi þegar timburmaður, sem hélt á glasi sínu, fór á hliðina. Timburmaðurinn heldur því fram að mikil ölduhæð hafi átt sök á þessu óhappi.
Skipstjóri ferjunnar segir að engan hafi sakað. Hann fékk upplýsingar um óhappið um kl. 21 í gærkvöldi en þetta virðist hafa átt sér stað örlítið fyrr.
“Hann stóð bara þarna í matsalnum, fyrst lyftist önnur löppin og svo bara féll hann á hliðina”, segir skipstjórinn.
“Við brýnum nú yfirleitt fyrir Timburmönnum að nota stuðningshjólagrindurnar, enda er oftar en ekki ástæða til þegar þessir kappar eru með í för”, segir skipstjórinn glottandi.
“Við skoðuðum hann. Hann er eitthvað lemstraður og báturinn líka. En við eigum eftir að skoða þetta betur. Annar farmur slapp og sama má segja um ökutækin sem um borð voru”.
