Stór og mikil landssöfnun er nú í fullum gangi til að safna fé fyrir rauðhærð börn í Afríku. Eins og allir vita eru rauðhærðir kúgaður og sorglegur minnihlutahópur, svo ekki sé meira sagt. Rauðhærðu fólki er jafnan strítt, enda er það fólk miklu verra en annað fólk – það gefur augaleið. Þessvegna er nú einmitt í gangi þessi ótrúlega stórkostlega söfnun fyrir rauðhærð börn í Afríku. Því auðvitað er nú bara nógu slæmt að búa í Afríku, þó maður þurfi nú ekki að vera rauðhærður líka !
– Við vinnslu þessarar fréttar var reynt að grennslast fyrir um hversu mörg rauðhærð börn búa í Afríku og samkvæmt okkar bestu vitund býr þar eitt rauðhært barn um þessar mundir. Það er 9 ára gamall írskur piltur sem er skiptinemi hjá hjónunum Kunta og Kinte í Kuboukulalele héraðinu þarna einhverstaðar í Afríku. Já hann O´Malley litli getur nú glaður við unað því íslenska þjóðin hefur safnað fyrir hann í allan dag og hann er nú rúmlega hundrað og fimmtíu milljónum ríkari !
