Timburmenn hafa nú dregið til baka afkomuviðvörun sína sem lögð var fram af gefnu tilefni í gær.
Ástæðan fyrir því að hún er nú dregin til baka er sú að FÍLA (Félag íslenskra landaframleiðenda) sá frétt gærdagsins og ákvað að gera eitthvað í málunum.
“Já, það má nú ekki spyrjast út að þessi mikilvægi hópur sé bara sendur út í daginn án hins ylhýra”, segir talsmaður FÍLA, ynntur eftir ástæðum þessarar hjálpar.
“Við ákváðum að efna til samskots til handa Timburmönnum meðal okkar félagsmanna. Það gekk glimrandi vel og náðum við að safna 15 brettum af hreinum spíra. Okkur skilst að það ætti að redda svona neyðarþörfinni fram að helgi hjá þeim.”
“Við erum klökkir og… glúgg glúgg… þakklátir”, sagði talsmaður Timburmanna við móttökuathöfn samskotsins. “Við vorum… glúgg glúgg… orðnir ansi svartsý… glúgg glúgg… nnniiir meðþ þetta allt saman en nú getum viððð tekhið gleði okkar á nýhh… glúgg glúgg…, þökkh sé elskhu vinum okkhar”.
