Vegna árshátíðar Timburmanna, sem haldin var fyrir skemmstu hefur nú verið ákveðið að loka útsölustöðum ÁTVR um óákveðinn tíma, þar sem allar hillur eru einfaldlega tómar. “Já við vorum reyndar búin að gera ráð fyrir söluaukningu, en það óraði engan fyrir þessu magni” sagði Magni Magnason, forstjóri ÁTVR. “Birgðir okkar voru fimmfaldar miðað við það sem áætla mætti, en samt sem áður þá kláraðist nánast hver einasti dropi um helgina! Eina sem er eftir er léttbjór og ein flaska af Kirsuberjalíkjör !” Beðið er eftir nýjum birgðum og er gert ráð fyrir að hægt verði að opna aftur næstkomandi laugardag.
Timburmenn hafa af þessu tilefni sent frá sér afkomuviðvörun. “Hvernig eigum við að komast af fram að helgi ?” – Sagði birgða og dreifingastjóri Timburmanna með grátstafinn í kverkunum.
