Femmufélagið hefur nú hafið inn-reið sína á handrukkunarmarkaðinn. Fréttir því tengdu hafa birst í fjölmiðlum nú í dag.

“Já, við erum svona að víkka út starfsemina. Svona í byrjun ætlum við einna helst að einbeita okkur að ýmsum sora, með sérstakri áherslu á innheimtu verndargjalda fyrir svokölluð sorakvöld”, sagði talsmaður Femmufélagsins í stuttu viðtali við Timbur-fréttir.
“Það er ýmislegt sem við gerum í staðinn. Við tökum þátt í kynningarstarfinu með fréttatilkynningum, bloggfærslum, á facebook og víðar”.
Vill félagið þó koma því á framfæri að ákveðin prósenta af gjaldinu renni til góðgerðastarfsemi. “Það má geta þess að í morgun var einmitt hluti af ágóða helgarinnar afhentur Strigamótum við hátíðlega athöfn”.
Timbur-fréttir óska Femmufélaginu til hamingju með nýju starfsemina.
