Í kvöld var fjölmennt lið lögreglumanna, slökkviliðsmanna, björgunarsveitamanna og bakaranema kallað út í miðborg Reykjavíkur þar sem vegfarendur sáu til ferða risastórs kattar. Samkvæmt lýsingum var kötturinn sannarlega risastór, eða eins og Bobbi blindi einn sjónarvottur lýsti honum: “geðveikt ferlíki!” – Leitað var að kettinum ógurlega fram eftir kvöldi, en um miðnætti var allt lið afturkallað þar sem í ljós kom að engin ástæða var til að örvænta. Það sem menn töldu vera risastóran kattarskratta, var í raun bara hún Sigríður Klingenberg á kvöldgöngu !
