Þegar ferlið við byggingu Hörpunnar hófst var áætlaður verk-kostnaður um sex milljarðar. Nú þegar hylla fer undir lok framkvæmda er framkvæmdakostnaður kominn nálægt tuttugu og átta milljörðum ! (28.000.000.000, sem eru rosalega mörg núll) ! Þetta þýðir að kostnaður er nær fimmfaldur miðað við áætlun. Það er af sem áður var þegar kostnaður var tí og tuttugufaldur í gamla góða góðærinu ! …Já nú eru sannarlega breyttari og ömurlegri tímar svo ekki sé meira sagt. Timbur-fréttir eiga erfitt með að segja frá þessu, því það lýtur hreinlega út sem Ísland sé löðrandi í fátækt !
