Stjórn Hörpu hefur ákveðið að banna með öllu alla skemmtun og gleði í tónleikahúsinu Hörpu, enda er það auðvitað með öllu óþolandi að fólk skuli voga sér að skemmta sér og gleðjast í jafn miklu menningarhúsi og Harpa er. Eins og allir vita er menning ekkert grín og hámenning ekkert til að spauga með eða gleðjast yfir. Jómfríður Frekjan formaður stjórnar Hörpunnar sagði í hádramatísku viðtali við Timbur-fréttir að hún hefði í alvöru séð tvo eða þrjá tónleikagesti brosa út í annað á tónleikum Bjarkar Guðmundsdóttur um daginn “Og það er náttúrulega alveg óþolandi að fólk skuli haga sér svona og alls ekki boðlegt þessum merka listamanni og þessu húsi!” – sagði Jómfríður að lokum, alvarleg í bragði.
