
Það hefur komið nokkuð á óvart hvað nýja tjaldstæðið á Austurvelli er orðið vinsælt svona strax á fyrstu opnunardögum. Hefur tjöldum fjölgað um hundruði prósenta á degi hverjum.
Hugmyndadeild Timburmanna, sem átti jú hugmyndina að þessu öllu saman, segir þó að þetta ætti ekki að koma neinum á óvart. “Þarna er jú slétt og flott tún og örstutt í allskyns þjónustu, meira að segja í hina opinberu þjónustu.” sagði deildarstjóri hugmyndadeildar Timburmanna í ekki svo mjög ítarlegu viðtali við Timbur-fréttir.
“Það er kannski einna helst að fara í taugarnar á okkur að einhverjir sem kalla sig mótmælendur skuli vera að reyna að hirða af okkur heiðurinn að þessu”.
