Lögregluyfirvöld höfðu afskipti af meintum mótmælendum sem tjaldað höfðu á Austurvelli, en við eftirgrennslan kom í ljós að þetta voru blásaklausir Pólverjar að fela sig fyrir Interpol. Lögreglustjóri og borgarstjóri hafa beðið þá opinberlega afsökunar !
– Besti flokkurinn safnar nú að sér mannskap fyrir framboð til alþingis. Nú þegar hafa landsfrægir einstaklingar gengið til liðs við flokkinn, og má þar nefna meðal annara: Nonna kúbein, Palla postula, Mumma mótmó og Steina sleggju !
– Iceland Express hefur farið fram á lögbann vegna þess að fráfarandi forstjóri félagsins fékk sér far með flugrútunni um daginn. “Óþolandi að hann komi nálægt einhverju tengdu flugi, og verður ekki liðið” – sagði Lilli api núverandi forstjóri félagsins fyrr í dag !
– Virðisaukaskattur af stafrænni tónlist var lækkaður í dag í 7 prósent. Nú er svo komið að stafræn tónlist er orðin svo ódýr að menn geta búist við því að fá ávísun í pósti í hvert sinn sem þeir niðurhala tónlist ólöglega á netinu !
