Nú nýverið var gerð rannsókn á gáfum sauðkinda og mönnum til mikillar furðu kom í ljós
að sauðkindur eru til mikils muna gáfaðri en áður var haldið. “Jú þetta er alveg rétt” sagði Hreinn Hreggviðsson, sauðfjármæligreinandi í ítarlegu viðtali um málið: “Í ljós kom að þetta er alltaf spurning um viðmið. Þegar við bárum gáfur sauðanna saman við venjulegt fólk voru þeir satt að segja sauðheimskir, en svo prófuðum við að bera sama gáfur sauðkinda og alþingismanna, og í ljós kemur að allir sauðir mælast þá langt yfir meðallagi og rúmlega það !” – Þess má að lokum geta að Hreinn er hrútur.
