Eins og allur Skagafjörður veit var árshátíð Timburmanna haldin um nýliðna helgi. Eins
og venjulega var mikið um dýrðir á árshátíðinni, en hápunkti var þó náð þegar sjálfur Geirmundur sveiflukóngur hélt ball Timburmönnum til heiðurs. Geirmundur söng þar mörg sín frægustu lög, eins og t.d. “Timburljóð til þín ég yrki í sandinn”, og “Nú er ég timbraður”, að ógleymdu stuðlaginu: “Í timbraðri sveiflu”, en það er skemmst frá því að segja að við flutning þess lags ætlaði hreinlega þakið að rifna af húsinu. Á meðfylgjandi mynd sést formaður Timburmanna í mikilli sveiflu, og sjá má sjálfan Geirmund fylgjast með af aðdáun. Ljóst er að formaður Timburmanna skemmti sér vel, enda brosti hann breitt !
