Fátt var meira í fréttum fyrir nokkru þegar aðalríkissaksóknarinn vildi ekki hafa aðstoðarundirvararíkissaksóknarann í vinnu lengur. aðalríkissaksóknarinn mátti samt ekki reka aðstoðarundirvararíkissaksóknarann svo aðalríkissaksóknarinn tók bara öll verkefni af aðstoðarundirvararíkissaksóknaranum svo að hann þurfti bara að sitja úti í horni og láta sér leiðast mjög mikið. Loks kom dómsmálaráðherrann, sem er reyndar ekki herra heldur frú, og sagði nei takk og lét aðalríkissaksóknarann vita það að þetta dæmi gengi ekki upp með aðstoðarundirvararíkissaksóknarann lengur.
Þessvegna gerði aðalríkissaksóknarinn starfslokasamning við aðstoðarundirvararíkissaksóknarann og er hann því á fullu kaupi hjá okkur sótsvörtum almúganum eins lengi og hann tórir.
Og nú hefur aðstoðarundirvararíkissaksóknarinn, sem er á fullu kaupi til æviloka, innleyst lögmannsréttindi sín og er aðstoðarundirvararíkissaksóknarinn fyrrverandi orðinn núverandi lögmaður, en að sjálfsögðu skerðir það alls ekki eftirlaun hans sem aðstoðarundirvararíkissaksóknari! – Sniðugt!!
(“já maður skáldar nú ekki svona sögur” – innskot ritstjóra)
Myndin sýnir aðstoðarundirvararíkissaksóknarann sýna fram á að sá hlær best sem síðast hlær – á tvöföldu kaupi!

