Ásmundarsalur fylltist af lífi og lit þegar þrjár sýningar af dansverkinu Timburfákur fóru fram við frábærar undirtektir núna í ágúst. Verkið, sem er eftir danshöfundana Glám Sveinsson og Skrám Hreinsson, þorir að ögra, ýkja og spyrja stórra spurninga um eðli kyns og líkama. Aðstandendur sýningarinnar sendu frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu:
„Timburfákur dregur áhorfendur inn í óvenjulegan heim – útópíska plánetuna Timbur, þar sem feðraveldið hefur aldrei verið til og fákar fá að renna á skeið, og renna sitt skeið”.
Í verkinu takast höfundarnir á við karllægt augnaráð og kvenlegar hlustanir og stíga þannig inn í hina einu sönnu hlutgervingu eðlismassans og snúa þannig öllu á hvolf, eða ekki! Af þessu verður til hin dýrlega og dýrslega vera, fákurinn, sem er á mörkum þess að vera dulbúin sem þvottabali. Áhorfendur fengu að upplifa dansverk sem þandi taugar og skilningarvit til hins ýtrasta, ásamt því að vera alveg hrútleiðinlegt.
Aðaldansari, og jafnframt annar höfundur verksins, Skrámur Hreinsson er hér á meðfylgjandi mynd í dulalrfullri lostasveiflu sem sér ekki fyrir endann á.

