Ruslabílstjórinn Hagbarður Hlöðversson hefur lítinn frið fengið síðustu ár á förnum vegi þar sem hann þykir í meira lagi líkur forsetanum sínvinsæla Donald Trump.
“Já þetta er nú aðeins farið að há mér” – sagði Hagbarður, eða Frikki eins og hann er alltaf kallaður, í tímamótaviðtali við Timbur-fréttir fyrr í dag. “‘Ég veit ekki hvað það er, hvort það er hárið, brosið, eða bara ruslatunnurnar, en fólk ruglar mér mjög oft saman við Trump, og þá sérstaklega núna í seinni tíð.
Ef myndin við þessa frétt prentast vel á skjái landsmanna má sjá að Frikki er svo sannarlega nauðalíkur forsetanum geðþekka, svo ekki sé meira sagt!

