Enn á ný hefur Gummi á gröfunni látið til skarar skríða, nú í Mosfellssveit í nótt þar sem hann braut niður útvegg Útnárabankans með gröfunni og hafði á brott með sér hraðbanka.
“Já þetta er nú orðið frekar þreytandi” -sagði Láki Lögga í samtali við Timbur-fréttir. “Við erum í þessum töluðu orðum að veita Gumma eftirför. Hann er á gröfunni en við erum nú bara fótgangandi svo ég reikna með að við náum honum eftir svona fimm mínutur, það er yfirleitt þannig!”

