Í dag var gengið frá sögulegum samningi, en þá skrifaði söngvarinn skikkjuklæddi Eyjólfur Bakkman undir samning við hljómsveitina Skítleganmóral um samstarf á vegum tónlistargyðjunnar. Eins og allir vita var Eyjólfur Bakkman lengi framan af að slást við glæpona og vonda kalla í Breiðholti, en eftir að hann komst á eftirlaun þá hefur hann látið lítið fyrir sér fara, en gaf þó út lagið “Ice-cream baby” eins og sumir muna fyrir nokkrum árum.
Von er á nýju lagi frá Bakkman og Skítmó fljótlega sem ber vinnuheitið: “Þegar styttist í vorið fara flugur á kreik og þær fljúga alveg brjálaðar inn í sumarið góða á ferköntuðu kústskafti mót sól!”

