Vel þekktur Timburmaður, oft kallaður Frikki Fax, er þekktur fyrir að hnýta skóþveng sinn á annan hátt en samferðamenn hans gera, enda er hann alltaf í reimalausum skóm, og ermalausum buxum. Frikki hefur ekki enn tekið í notkun nýja tækni eins og farsíma og tölvupóst, heldur treystir hann eingöngu á gamla góða faxtækið sitt til allra samskipta.
Timbur-fréttum lék forvitni á að vita aðeins meira og spurðum við Frikka þessvegna hvort þetta hafi ekki háð honum neittt í mannlegum samskiptum, og hvort viðbrögð og svörun í faxtækinu séu viðunandi?
“Já biddu fyrir þér, þetta er algjört æði. Ég sendi bara fax á alla sem ég þarf, þegar mér sýnist og það virðast allir bara vera sáttir og sælir sem ég sendi á. Ég hef allavega ekki fengið neitt svar tilbaka síðan fyrir hádegi árið 1989!”

