Samið hefur verið um starfslok fundarritara samstæðu Timburmanna á aukafundum prjónadeildar klúbbsins (sem reyndar hefur aldrei verið starfrækt) þar sem sást til hans fá sér kók í Skagafirði þann 27. júlí síðastliðinn.
Þetta þykir mjög alvarlegt brot á drykkjureglum Timburmanna, sem á einfaldan hátt hljóma þannig að það beri að hafa eitthvað áfengi í öllum drykkjum.
Kosning nýs fundarritara fyrir aukafundi prjónadeildar fer fram á aðfangadag 2025 að öllu óbreyttu.
