Stórmerkilegur fornleifafundur varð á dögunum þegar það sem talið er vera fyrsti heilinn úr Timburmanni fannst á klámbekk (eða var það glámbekk?). Heilinn fannst merkilega heill svo tíðinum sætti. Strax þótti ljóst þegar heilinn fannst úr hvaða Timburmanni hann væri og var því umsvifalaust hringt í viðkomandi og hann spurður hvort hann saknaði einhvers. Ekki taldi sá Timburmaður svo vera og þótti því ekki ástæða til að skila heilanum aftur til síns heima. Ef einhver telur sig geta nýtt heilann á einhvern hátt má hafa samband við ritstjórn Timbur-frétta. Þetta gæti t.d. nýst sem bréfapressa, kærasta fyrir skjaldböku, eða jafnvel öskubakki sé honum snúið á hvolf!

