Til að sýna fram á að hæstvirt ríkisstjórn sé ekki eingöngu með hugann við höfuðborgina þá var ákveðið að halda fund ríkisstjórnarinnar langt úti á landi, eins og einn ráðherrann orðaði það svo snilldarlega.
Tíðindamaður Timbur-frétta sló á þráðinn til Jóa Palla, umhverfis, orku og loftbelgjaráðherra frá Samflykkingunni, en hann er sem kunnugt er yngsi ráðherra landsins nýorðinn ellefu ára. Ráðherra var spurður hvar þessi landsbyggðafundur hafi verið haldinn og hvort hann hafi verið gagnlegur?
“Ég veit ekkert hvar við erum, en við fórum miklu lengra en Ártúnsbrekkan nær” – sagði ráðherrann í grátklökkku viðtali. “Við rötum ekki alveg leiðina heim en mamma var búin að lofa að sækja okkur eftir vinnu!”
Meðfylgjandi mynd náðist úr loftbelg af fundi ríkisstjórnarinnar. Samstaða þótti með eindæmum góð.

