Sú mikla mildi hefur loks orðið að nú er á ný búið að opna Fótasnyrstistofu Timburmanna, eftir áralanga lokun vegna myglusvepps. Forsaga málsins er að í áraraðir var fótsnyrstistofa þessi mjög vinsæl meðal Timburmanna, sem auðvitað vildu skarta sínu fegursta – að neðan!
Fyrir nokkru síðan kom því miður upp alvarlegur myglusveppur á stofunni og almenn táfýla fylgdi í kjölfarið svo réttast þótti að loka stofunni, brenna bygginguna og týna póstnúmerinu.
En nú, mörgum árum síðar, hefur hugrakkur Timburmaður (eða heimskur) ákveðið að opna fótsnyrtistofuna á ný með bjartsýni og slípirokk að vopni!

