Heilbrigðiseftirlitið hefur ákveðið að skamma rosalega alla yfirmenn, starfsmenn og gesti á veitingastaðnum Metoo (eða eitthvað svoleiðis), sem eitt sinn hét eitthvað annað sem enginn man lengur. Við hefðbundið eftirlit og hamborgaraát starfsmanna eftirlitsins kom í ljós að allskonar óæskilegt dót var í matnum á staðnum, svo sem dömubindi, herrabindi og fyrsta og annað bindi, svo eitthvað sé nefnt. Einnig þótti konan sem afgreiddi eftirlistmennina frekar lítið fyrir augað, já hún var eiginlega bara forljót, var haft eftir Ella eftirlitsmanni að lokinni máltíð.

