Að sögn borgarstjóra Reykjavíkur, sem enginn veit samt einhvernveginn alveg hver er, þá hefur átakið þétting byggðar tekist svona líka alveg hreint ljómandi vel, svo ekki sé meira sagt. Við byrjuðum á að þétta miðbæinn og svo fórum við að þétta tilhliðarbæinn og loks alvegútáendabæinn, og næst ætlum við að þétta langtíburtubæinn líka” – sagði borgarstjóri (eða allavega einhver þarna í skrifstofunni hjá öndunum).
“Þetta er agjört æði þetta nýja kítti sem við keyptum og með því hefur okkur tekist að þétta bara allskonar, og við erum sko hvergi nærri hætt að þétta. Til dæmis þá lekur smá klósettið heima hjá mér, og ég ætla sko að stela smá kítti úr þéttingaprógramminu og fara með það heim í kvöld og þétta þann leka, það verður pottþétt!”

