Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja blátt bann við hinum alræmda leik “gulur bíll” sem tröllriðið hefur þjóðfélaginu svo lengi sem elstu menn muna. Leikur þessi gengur út á það að ef einhver sér gulan bíl þá má hann berja næsta mann í spað, eða um það bil. Mál manna er að hið háa alþingi hafi verið nánast óstarfhæft eftir að ráðherra vandamála Ingi Hlæland keypti sér gula bjöllu um daginn (semsagt bíl sko ekki venjulega bjöllu).
“Já það er rétt” – sagði Ingi Hlæland í símaviðtali við Timbur-fréttir. “Eftir að ég keypti gulu bjölluna er ég algjörlega ósigrandi í þessum leik og hef nú lúskrað á öllum þingmönnum og öðru starfsfólki þingsins, auk nokkura mótmælenda, róna og annara homma sem leið hafa átt hér um Austurvöll”.
Þess má geta að Alþingi er um þessar mundir óstarfhæft þar sem flestir sem þar voru eru nú á biðlista á Landspítalanum til að freista þess að láta gera að sárum sínum eftir viðskipti við Inga Hlæland og gula bílinn hans!

