Eftir ítrekaða leit hefur loks tekist að hafa uppi á hinum eina sanna gráa fiðring. Eðli málsins samkvæmt hefur það verið mikið áhugaefni fyrir Timburmenn að finna, átta sig á og skilja gráa fiðringinn. Sérstaklega þar sem flestir Timburmenn eru jú illa haldnir af þessum fjanda. Eftir áralangar rannsóknir á rannsóknarstofu Timburmanna hefur nú loks náðst nýtanlegt eintak af gráa fiðringnum, sem mun gagnast vel við frekari rannsóknir á fyrirbærinu.
“Já það er rétt, við fengum Timburmann til okkar sem sjálfboðaliða, og hann gaf okkur leyfi til að taka úr sér það sem við gætum nýtt okkur. – Sagði Vandráður Grámann, yfirrannsakandi Timburmanna í sjóðheitu viðtali. “Fyrst tókum við úr honum heilann, en hann var alveg vita gagnslaus, en svo fundum við í nágrenni við hann einhverja gráa hrúgu, sem við teljum að sé hinn eini sanni grái fiðringur!” – Rannsóknir munu hefjast innan tíðar og nánari fréttir munu berast hér fljótlega, nema að menn séu með gráa fiðringinn og séu því að hneppa öðrum hnöppum!

