Hin háaldraða söngva og músík mús, sem svo sannarlega hefur verið upptekin síðustu áratugi í leikhúsum landsins að reyna að lifa af í stöðugri baráttu sinni við Mikka Ref, hefur nú loks ákveðið að láta staðar numið með ferilinn.
“Já ég bara nenni þessu ekki lengur!” -sagði Lilli aðspurður er fréttasnápur Timbur-frétta hitti hann á förnum vegi. “Hversu oft eiginlega er hægt að nenna að svæfa einn fjandans ref! Ég hata þetta fjárans lag og hata þetta fjárans tré sem er alltaf erfiðara og erfiðara að klifra upp í, sérstaklega eftir að ég fékk nýju mjaðmirnar!”
Þess má geta að Lilli Klifurmús er orðinn 67 ára og hefur því fullan rétt á að njóta eftirlauna sinna, auk þess sem hann fær frítt í strætó og 30% afslátt af bjór á Kringlu-kránni.

