Rannsókn Timbur-lögreglunnar á atviki er varð í síðustu bænaferð Timburmanna í mekka félagsskaparins, að Apavatni telst nú lokið. Málavextir eru að Tónlistarstjóri Timburmanna féll í djúpan svefn skömmu eftir að hann kom í bústaðinn og hefur hann ekki rumskað síðan.
Það er skoðun rannsóknaraðila að óprúttnir Timburmenn, með kaftein Timburmanna í broddi fylkingar, hafi tekið sig saman og byrlað tónlistarstjóranum svefnlyf sem ætlað er hrossum, og er ástæðan sögð sú að menn hafa fyrir löngu fengið nóg af tónlistarvali því sem boðið hefur verið uppá í ferðum þessum hin síðari ár.
Timburmaður sem ekki vildi láta nafn síns getið sagði að það gæti alveg hugsast að þetta væri hárrétt því þrjóturinn spilar bara eitthvað hommapopp frá eighties tímabilinu og því löngu orðið tímabært að þagga niður í þessum andskota fyrir fullt og allt!
Því miður náðist ekki í tónlistarstjóra Timburmanna við vinnslu fréttarinnar því hann er jú enn sofandi, og ekki náðist heldur í kaftein Timburmanna því hann er í felum!

